HVER STUND TELUR

Haltu utan um útseldar vinnustundir.

Verkspor er einfalt kerfi fyrir fyrirtæki sem vinna verkefni fyrir viðskiptavini. Skráðu vinnustundir á mál, geymdu athugasemdir og hafðu yfirsýn yfir það sem hefur verið gert.

Þegar kemur að reikningagerð skiptir máli að engin unnin vinnustund gleymist.

Hentar litlum og meðalstórum fyrirtækjum

Ein gleymd vinnustund getur kostað meira en áskriftin.

Ef þú selur vinnu eftir tíma getur nákvæm skráning skipt sköpum. Verkspor hjálpar til við að varðveita upplýsingarnar um unna vinnu.

EIGINLEIKAR

Það sem þú þarft til að halda utan um vinnuna

Verkspor safnar saman skráningum sem annars geta dreifst á tölvupósta, glósur og töflureikna.

Vinnustundir á rétt mál

Skráðu tíma og lýsingu á vinnu beint á málið sem hún tilheyrir. Þá er auðveldara að sjá hvað hefur verið unnið.

Viðskiptavinir og mál

Haltu utan um mál hvers viðskiptavinar, stöðu þeirra og hver ber ábyrgð á framkvæmdinni.

Athugasemdir og viðhengi

Skráðu upplýsingar jafnóðum og tengdu skjöl við athugasemdir á málinu. Allt á sínum stað.

Undirbúningur reikningagerðar

Finndu skráða vinnu þegar kemur að uppgjöri. Verkspor heldur utan um tímana en er ekki bókhaldskerfi.

HVERNIG VIRKAR VERKSPOR?

Þrjú einföld skref

Ekki flóknara en þarf. Skráðu vinnuna þar sem hún á heima.

01

Stofnaðu viðskiptavin og mál

Bættu við viðskiptavini og stofnaðu mál fyrir verkefnið eða þjónustuna sem á að sinna.

02

Skráðu tíma og athugasemdir

Starfsmenn skrá vinnustundir á viðkomandi mál og bæta við skýringum eða skjölum eftir þörfum.

03

Farðu yfir unna vinnu

Skoðaðu skráningarnar og notaðu upplýsingarnar þegar kemur að því að gera upp vinnuna.

FYRIR HVERJA?

Fyrirtæki sem selja vinnu og þjónustu

Verkspor hentar sérstaklega þegar margir viðskiptavinir, mörg mál og margir starfsmenn kalla á skipulegt utanumhald.

01

Tölvuþjónusta

Þjónustubeiðnir, uppsetningar og ráðgjöf.

02

Iðn- og viðhaldsfyrirtæki

Viðgerðir, viðhald og þjónusta hjá viðskiptavinum.

03

Ráðgjafar og sérfræðingar

Útseld ráðgjöf, verkefnavinna og fundir.

04

Önnur þjónustufyrirtæki

Vinna sem þarf að skrá á mál og viðskiptavini.

ALGENGAR SPURNINGAR

Gott að vita

Er Verkspor bókhaldskerfi?

Nei. Verkspor heldur utan um mál, vinnustundir og upplýsingar um unna vinnu. Reikningar eru gerðir í því bókhaldskerfi sem fyrirtækið notar.

Geta fleiri en einn starfsmaður unnið að sama máli?

Já. Mál getur haft ábyrgðaraðila og samstarfsfólk sem vinnur að því. Hægt er að skrá vinnu og athugasemdir á málið.

Er hægt að bæta við skjölum?

Já. Hægt er að tengja viðhengi við athugasemdir og geyma þau með upplýsingum um málið.

VERKSPOR

Hver stund telur.

Haltu skrá yfir vinnuna sem fyrirtækið þitt vinnur fyrir viðskiptavini.

Opna Verkspor